Lög félagsins

Eftirfarandi lög, voru samþykkt á stofnfundi félagsins, 25. apríl 2022

 

1. gr. Nafn félagsins

Félagið heitir “Félag ökuleiðsögumanna”. Félagssvæði þess er allt landið og heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr. Tilgangur félagsins

Tilgangur félagsins er að vera samstarfsvettvangur og hagsmunasamtök allra þeirra er starfa við ökuleiðsögn á Íslandi, vinna að hagsmunamálum þeirra og gæta réttinda þeirra og koma fram fyrir þeirra hönd eins og þörf krefur.

3. gr. Starfsemi félagsins

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að virkja félagsmenn til þátttöku í stefnumótun og hagsmunabaráttu ökuleiðsögumanna. Með skilvirkri öflun upplýsinga og dreifingu þeirra til félagsmanna tryggjum við virka félagsmenn sem leggja reynslu sína og þekkingu að mörkum í hagsmuna- og kjarabaráttu ökuleiðsögumanna. Áhersla er lögð á lýðræðislega, en um leið skilvirka uppbyggingu félagsins þar sem hver félagsmaður upplifir sig þátttakanda í uppbyggingu samfélags ökuleiðsögumanna á íslandi.

4. gr. Smiðjur

Dagleg starfssemi félagsins fer að miklu leyti fram í smiðjum. Smiðjur eru vettvangur um afmörkuð hagsmunamál ökuleiðsögumanna. Í smiðjunum gefst hinum almenna félaga tækifæri til þess að leggja sitt af mörkum og taka þátt í umfjöllun, upplýsingöflun og þarfgreiningum o.fl.sem nýtist félaginu í hagsmunabaráttunni.

5. gr. Félagsaðild

Rétt til félagsaðildar hefur hver sá sem hefur atvinnu sína af ökuleiðsögn innan ferðaþjónustunnar og greitt hefur árgjald félagsins. Rétt til aðildar eiga jafnframt allir sjálfstætt starfandi einyrkjar án tillits til ráðningarforms við ökuleiðsögn, þ.e. sem ekki hafa launaða starfsmenn í vinnu.

6. gr. Starfstímabil

Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs og leggja fram skriflegt yfirlit yfir starfsemi ársins.

Aðeins félagsmenn sem greitt hafa árgjald til félagsins, eigi síðar en tveim vikum fyrir aðalfund, hafa atkvæðarétt og kjörgengi, þeir hafa eigi að síður málfrelsi greiði þeir síðar en 2 vikum fyrir aðalfund. Rukkun fyrir félagsgjöldum skal senda út eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund.

7. gr. Aðalfundur

Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. maí ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála, og hefur rafræn þáttaka sama gildi og þátttaka þeirra sem mættir eru á fund. Um framkvæmd fundar gilda almenn fundarsköp. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Skýrsla stjórnar lögð fram
  • Reikningar lagðir fram til samþykktar
  • Lagabreytingar
  • Ákvörðun félagsgjald
  • Kosning stjórnar
  • Kosning skoðunarmanna reikninga
  • Önnur mál

8.gr. Stjórn félagsins

Stjórn félagsins skal skipuð 5 félagsmönnum, formanni og 4 meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til tveggja ára í senn. Varamenn skulu vera 5 og eru þeir jafnframt kjörnir á aðalfundi. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórnin hefur á hendi yfirstjórn allra félagsmála og samstarf við önnur félög í umboði aðalfundar. Hún ræður starfsmenn félagsins, ákveður laun þeirra og vinnuskilyrði.
Stjórnin ber sameiginlega ábyrgð á eignum og sjóðum félagsins sem og rekstri skrifstofu þess. Hún annast kynningu á starfsemi félagsins fyrir félagsmenn og almenning.

Stjórnin boðar til félagsfunda og aðalfundar.

Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.

9. gr. Félagsgjald

Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjöld skulu innheimt árlega. Við inngöngu í félagið er innheimt félagsgjald fyrir fyrsta árið. Fyrst við greiðslu árgjaldsins verður umsækjandi fullgildur félagi í félagingu.

10. gr. Reikningar og Reikningsár

Reikningsár félagsins skal vera almanaksárið. Tveir félagskjörnir skoðunarmenn reikninga, sem kosnir eru á aðalfundi skulu yfirfara reikninga félagsins fyrir liðið reikningsár og gera athugasemdir við þá. Rekstrarafgangi af starfsemi félagsins skal varið til áframhaldandi uppbyggingu á starfsemi sambandsins samkvæmt ákvörðun aðalfundar.

11. gr. Slit félagsins

Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með auknum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til góðgerðafélags sem fundur ákveður en ekki til félagsmanna.

12. gr. Lagabreytingar

Lagabreytingatillögur skulu fylgja í aðalfundaboði svo félagsmenn hafi tíma til þess að mynda sér skoðun á þeim. Til þess að lagabreytingar nái fram að ganga, skulu þær hljóta samþykki 2/3 hluta atkvæða. Skulu

Lagabreytingar taka gildi um leið og þær hafa verið samþykktar.

13. gr. Endurskoðun laganna

Lög þessi skulu endurskoðuð fyrir aðalfund á árinu 2023.

Samþykktir/lög þessi lögð fyrir stofnfund félagsins til samþykktar.

Dagsetning: 25. apríl 2022