Fréttabréf

Fréttabréf Félags ökuleiðsögumanna – Janúar 2023

Kæru félagar

Við stofnun Félags ökuleiðsögumanna, var lögð megin áhersla á mikilvægi þess, að starfssemin færi hvað mest fram í smiðjum félagsins. Með því vildu stofnfélagar tryggja lágmarks toppstýringu félagsins, en jafnframt tryggja aðkomu sem flestra, að umræðu um mikilvæga málaflokka, er varða hagsmuni ökuleiðsögumanna.

Þrátt fyrir að treglega hafi gengið að virkja félagsmenn til þátttöku í starfsemi smiðjanna, þá er stjórn félagsins þess fullviss, að þessi hugmyndafræði sé rétt leið fyrir félagið. Með því að hver og einn félagsmanna, komi með sína reynslu og þekkingu að borðinu, erum við mun betur í stakk búin til þess að takast á við áskoranir, er hamla hagsmunum ökuleiðsögumanna. Flestum ætti að vera það ljóst, hversu miklir möguleikar felast í því að virkja þá reynslu og þekkingu sem okkar félagar, sem nú eru orðnir á annað hundrað, búa yfir.

Í ljósi þessa, þá er nokkuð ljóst að fáeinir einstaklingar hafa borið hitann og þungann af starfseminni frá stofnun félagsins. Áhersla hefur verið lögð á að skapa þessu nýja félagi þann sess, að við séum vel kynnt og við þekkt fyrir að vera eftirsóttur samstarfsaðili við þróun ferðaþjónustu í landinu.

Í stuttu máli, þá höfum við átt mikilli velgengni að fagna á okkar stutta ferli, en það hefur líka í för með sér, að nú bráðliggur á að setja saman starfshópa um hin ýmsu samstarfsverkefni, sem félagið er nú þáttakandi í. Eins og áður hefur komið fram, þá er Félag ökuleiðsögumanna nú þegar þátttakandi í samstarfsverkefnum með samstarfsaðilum, eins og t.d. Samgöngustofu, Hæfnisetri ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofu o.fl.

Á næstu dögum munum við hafa samband við þá félaga, er skráð hafa sig í hinar ýmsu smiðjur og gefa þeim kost á að taka þátt í starfshópi, er heldur utan um málaflokk viðkomandi smiðju.  Viljum við hvetja þá félagsmenn er skráð hafa sig í smiðjur, að taka erindi stjórnar vel og bjóða sig fram til setu í starfshópi. Í flestum tilfellum, erum við ekki að tala um mikla viðveru eða yfirlegu fyrir hinn almenna félagsmann og oftar en ekki er hægt að vinna í starfshópunum með aðstoð fjarfundarbúnaðar.

Við stofnun félagsins, var tekin ákvörðun um að hafa árgjald félagsins í lægri kantinum og því hefur félagið að sjálfsögðu, þurft að sníða sér stakk eftir vexti. Þrátt fyrir þetta hefur margt áunnist og til þess að nefna nokkur verkefni, sem unnið hefur verið að, má nefna:

Lógó félagsins

Felag-okuleidsogumanna-logo-480x157px.jpgÞar sem félagið er nú þegar þátttakandi í mörgum samstarfsverkefnum, þar sem mikil samskipti eiga sér stað, reyndist nauðsynlegt að fara út í hönnun á lógó fyrir félagið. Það var svo kannski ekki síst vinnan við að gefa út rafræn skírteini fyrir félagsmenn, sem gerði þetta verkefni aðkallandi.

Eins og félagar hafa sjálfsagt séð, er þeir tóku í notkun rafrænu skírteinin sín, þá er lógóið byggt á þeirri staðreynd að mikilvægasta verkfæri ökuleiðsögumanna er „headsettið“ enda nær eingöngu notað við ökuleiðsögn.  Það er að sjálfsögðu eins og alltaf þegar ný lógó eru kynnt, sitt sýnist hverjum. En í það minnsta þá varð til nothæft lógó, sem miðað við efni og aðstæður er alveg prýðis lógó. Aðalfundur getur svo hvenær sem er tekið ákvörðun um að láta gera nýtt lógó, ef meirihluti félagsmanna er því fylgjandi

Rafræn skírteini

Rafræn_skírteini.pngÞegar stjórn félagsins réðst í það verkefni, að leita afsláttartilboða fyrir félagsmenn, lá nokkuð ljóst fyrir að gefa yrði út félagsskírteini, sem félagsmenn gætu notað til þess að staðfesta félagsaðild sína að Félagi ökuleiðsögumanna. Í samvinnu við fyrirtækið Smartsolutions, hefur félagið unnið að þróun rafræns skírteinis fyrir félagsmenn og ættu allir félagsmenn að hafa fengið sitt skírteini „í hendur“.

Fyrirtækið Smartsolutions er leiðandi hér á landi í hönnun og útgáfu á rafrænum skírteinum, en fyritækið hefur m.a. fengið það hlutverk að þróa og gefa út rafræn íslensk ökuskírteini.

Við útgáfu á skírteinunum, eru upplýsingar um nafn og kennitölu félaga, en einnig er á bakhlið að finna upplýsingar ef félagsmaður hefur tekið að sér trúnaðarstörf fyrir félagið.  Hjálpar þetta mjög til við öll samskipti við samstarfsaðila o.fl.  Sem dæmi um trúnaðarstörf, er seta í stjórn og varastjórn félagsins, en einnig ef viðkomandi félagi hefur tekið að sér að vera verkstjóri í einhverri af þeim 10 smiðjum, er starfa innan félagsins.

Viljum við hvetja félagsmenn til þess að skoða skírteinin sín vel og þannig átta sig á því hvernig þau virka. Við höfum sem dæmi orðið vör við það, að margir hafa ekki áttað sig á því að á skírteininu er einnig bakhlið, þar sem ýmsar upplýsingar er að finna, eins og t.d. trúnaðarstöður, tilgang félagsins og ýmsar almennar upplýsingar um félagið. Til þess að skoða bakhlið skírteinisins, þá þarf að smella á "I" hnappinn.I hnappurinn    

Afsláttur af endurmenntunarnámskeiðum

Með tilkomu félagsskírteina, er nú mun auðveldara fyrir okkur sem félag, að semja um afsláttarkjör hjá ýmsum aðilum, er selja vörur og þjónustur er teljast mikilvægar fyrir störf okkar sem Ekill logoökuleiðsögumenn. Enda algjör forsenda að hægt sé að sýna fram á aðild að félaginu.  

Tilboð Ekils

Nú þegar hefur verið gengið frá samstarfi við Ekil ehf, en félagið reyndist með lang besta tilboðið og býður félagsmönnum umtalsverðan afslátt af endurmenntunarnámskeiðum, sem ökuleiðsögumönnum er skylt að taka á 5 ára fresti.   Öll námskeiðin fimm kosta félagsmenn 68 þúsund í stað 100 þúsund kr miðað við verð í dag, en geta má þess, að flestir ökuskólar hafa kynnt hækkun á námskeiðsgjaldi á þessu ári.

Unnið að frekari samningum um afslætti

Félagið er svo að vinna í því að afla félögum frekari afsláttarkjara.  Ef einhverjir félagar hafa tök á að leggja því verkefni lið, væri það mjög vel þegið.

Varúðarviðmið vegna vinds fyrir hópferðabíla

Varúðarviðmið.pngEitt af þeim verkefnum sem félagið hefur ráðist í er upplýsingaherferð í samvinnu við Samgöngustofu, þar sem bent er á mikilvægi þess að kynna sér og styðjast við gátlista Samgöngustofu er fengið hefur nafnið „Varúðarviðmið vegna vinds fyrir stór ökutæki“. Er þessi gátlisti gefinn út af Samgöngustofu í samvinnu við tryggingafélögin. Gátlisti sem þessi getur skipt sköpum, þegar kemur að því að taka ákvarðanir um hvort snúa eigi við eða halda áfram, þegar vindstrengir og vindhviður gerast varasöm.

Hluti af því verkefni sem við erum vinna að, er m.a. að kanna hvort ekki sé rétt að skoða sérstaklega, hvaða viðmið sé rétt að setja, með tilliti til smærri hópferðabíla með kerru.

Í samstarfsverkefni þessu, mun félagið standa fyrir því láta setja upp þennan gátlista, á þeim stöðum þar sem leiðsögumenn koma saman á ferðum sínum. Leiðsögumenn geta þá kynnt sér gátlistann og stuðst við hann í ákvarðanatökum.  Verkefnið á sér svo marga anga og býður upp á skemmtilega möguleika. Hvetjum við þá er vilja koma að þessu verkefni, að gefa sig inn í starf Smiðju um öryggismál, en Ingólfur Harðarson fer fyrir henni. Netfang öryggissmiðju er: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Hagsmunabaráttan

Alveg frá stofnun félagsins hefur mikið af tíma stjórnar verið varið í að aðstoða félagsmenn, sem oftar en ekki hafa fengið greitt langt undir taxta. Við erum þá að tala um launataxta er samið var um fyrir 4 árum síðan. Þar sem Leiðsögn - stéttarfélag leiðsögumanna fer með samningsumboð fyrir leiðsögumenn, þá höfum við unnið náið með formanni kjaranefndar stéttarfélagsins, þegar þessi mál snúa að ökuleiðsögumönnum í ráðningarsambandi.

Það er hins vegar greiðslur til ökuleiðsögumanna í verktöku, sem valdið hafa félagsmönnum hvað mestum áhyggjum. Alltof víða hafa ökuleiðsögumenn sætt sig við greiðslur, er skila þeim launum langt undir umsömdum launatöxtum kjarasamninga. Oftar en ekki hafa félagsmenn átt erfitt með að átta sig á því, hvað sé eðlilegur taxti í verktöku. Það hefur svo ekki hjálpað til, að ýmislegt veldur því að þessi mál verða óskýr og illgreinanleg ekki síst þegar greitt er "flat rate" yfir daginn eða jafnaðarkaup.

Það sem er þó gleðilegt í þessari mikilvægu hagsmunabaráttu okkar, er sú staðreynd að fleiri fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa á undanförnum mánuðum hækkað greiðslur svo þær fylgi launatöxtum kjarasamninga.

Þó það sé ekki einhlýtt, þá er hægt að ganga út frá því að ef ökuleiðsögumenn í verktöku fái greiðslur undir 7.100.- kr í jafnaðarkaup, þá eru þeir ekki að ná því að fá umsamin laun kjarasamninga. Við erum að tala hér um lágmark, en nákvæm tala fer svo eftir því í hvaða launaflokki viðkomandi ökuleiðsögumaður er. Þetta er sem sagt þumalputtaregla, sem hefur hjálpað mörgum félagsmanninum að átta sig á þeirri stöðu sem hann finnur sig í.

Ef þú félagsmaður góður telur þig fá greitt undir launatöxtum endilega hafðu samband við Launa- og kjarasmiðju félagsins en netfang smiðjunnar er: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Launareiknir félagsins

Að öllum öðrum verkefnum ólöstuðum, þá er vinna félagsins að þróun launareiknis fyrir ökuleiðsögumenn, eitt af þeim allra mikilvægustu. Gunnar B. Ólason er situr í varastjórn félagsins, hefur lagt í mikla vinnu við að þarfagreina alla útreikninga og hefur gert Launareiknir.pnglaunareikni í MS Excel. Núna geta félagsmenn reiknað út nákvæmlega rétt laun, óháð því hvort þeir vinna inn laun sín í ráðningarsambandi eða verktöku.

Nú er hins vegar mikil þörf á að gera veflausn, þar sem launareiknir Gunnars verði gerður aðgengilegur á vef félagsins, þar sem félagsmenn eiga auðveldara með að nýta sér hann.  Leitum við því til félagsmanna og auglýsum eftir aðstoð við að útbúa launareikninn á vefformi.  Ef einhverjir félagsmenn hafa þekkingu á veflausnum, þar sem MS Excel er breytt yfir í vefform, þá yrðum við þakklát, ef þeir hinir sömu hefðu tök á að aðstoða okkur við þetta svo mikilvæga verkefni.   

Leiðir að öflugu starfi

Stjórnin hefur svo skoðað hinar ýmsu leiðir, til þess að efla starfsemi félagins.  Eitt af því sem við ætlum að innleiða, er sú nýbreytni að boða alltaf varastjórn á fundi stjórnar. Teljum við að með þessu, eflum við framvarðasveitina og léttum eilítið byrðarnar á þeim sem borið hafa hitann og þungann af starfseminni hingað til.  Stjórnin mun svo oftar en ekki, fá á fund til sín lykilfólk, er fer fyrir hinum ýmsu verkefnum á vegum félagsins.

Félagi góður, þó svo að þú teljir þig hafa takmörkuð tök á að gefa tíma í þátttöku í smiðjum félagsins, þá hvetjum við þig til þess að skrá þig í Facebook grúppu félagsins, þar sem frekari kynning á hinum ýmsu verkefnum fer fram og félagsmenn geta náð sér í upplýsingar um gang mála.

Um leið og stjórn félagsins þakkar félagsmönnum fyrir þátttöku þeirra í stofnun félagsins og starfsemi þess á liðnu ári, óskum við félögum öllum velgengni á nýju ári.

Stjórn Félags ökuleiðsögumanna