Félag ökuleiðsögumanna

Velkomin/-n á heimasíðu Félags ökuleiðsögumanna. 

Félag ökuleiðsögumanna er hagsmunafélag allra þeirra er starfa sem ökuleiðsögumenn í ferðaþjónustu, hvort sem er í fullu starfi eða hlutastarfi.

Rétt til aðildar eiga jafnframt allir sjálfstætt starfandi einyrkjar án tillits til ráðningarforms við ökuleiðsögn, þ.e. sem ekki hafa launaða starfsmenn í vinnu. 

Félagið er stofnað til þess að vera vettvangur fyrir ökuleiðsögumenn, þar sem félagsmenn geta unnið að hagsmunabaráttu ökuleiðsögumanna og átt sameiginlega rödd.

Engin skilyrði eru fyrir inngöngu í félagið önnur en þau, að starfa við ökuleiðsögn (af hvaða tagi sem er) og hafa brennandi áhuga á að vinna að bættu starfsumhverfi og kjarabótum fyrir ökuleiðsögumenn.