AÐALFUNDUR - FÉLAGS ÖKULEIÐSÖGUMANNA - 2024
30. maí 2024 - kl. 19:30 – Húsi fagfélaganna, fundarsalur - Stórhöfða 29
Aðalfundur Félags ökuleiðsögumanna, verður haldinn 30. maí, kl. 19:30. Fundurinn verður staðarfundur, en félagsmenn eiga þess kost að tengjast fundinum með ZOOM fjarfundarbúnaði og verður krækja á fundinn send út viku fyrir fundardag.
Vinsamlegast athugið að félagar þurfa að skrá fundarþátttöku með því að senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. – Er Þetta gert til þess að tryggja að kjörskrá sé rétt og ekkert hindri félaga að tengjast gegnum fjarfundarbúnað.
Af óviðráðanlegum orsökum var ekki hægt að halda aðalfund fyrr, réttmæti fundarboðs verður því að sjálfssögðu borið undir fundinn, en svo segir í 7. grein laga félagsins:
Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. maí ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála, og hefur rafræn þáttaka sama gildi og þátttaka þeirra sem mættir eru á fund. Um framkvæmd fundar gilda almenn fundarsköp.
Dagskrá aðalfundar samkvæmt sömu grein skal vera sem hér segir:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Lagabreytingar
- Ákvörðun félagsgjalds
- Kosning formanns
- Kosning í stjórn
- Kosning varamanna í stjórn
- Kosning skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál
Frestur til að skila inn framboðum rennur út 15. maí. Þeir sem áhuga hafa á því að bjóða sig fram til trúnaðarstarfa, þurfa að senda inn tilkynningu um framboð sitt, með stuttri kynningu og mynd á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
- Formaður – Kosinn til tveggja ára
- 4 einstaklingar í stjórn – Kosnir til tveggja ára
- 4 einstaklingar í varastjórn - Kosnir til eins árs
Frestur til að senda inn lagabreytingatillögur rennur út 15. maí.
Með kveðju
Stjórn Félags ökuleiðsögumanna
